ÞAÐ VERÐUR KKS ÞORRABLÓT þann 16. febrúar.
Vegna frábærra undirtekta hefur Karlakór Siglufjarðar ákveðið að hleypa af stokkunum þorrablóti KKS þann 16. febrúar næstkomandi í íþróttahúsinu Siglufirði. Matur, skemmtun og dansleikur !
Talnaspekúlantar KKS hafa reiknað það saman að vel yfir 200 manns hafi þegar tilkynnt þátttöku. Það lítur því út fyrir að þetta verði frábært þorrablót. Miðaverð er sem hér segir:
Almennt verð: 4.500 Kr
67 ára og eldri: 3.500 Kr
Siglfirðingar og Ólafsfirðingar nær og fjær, nú er frábært tækifæri til að heimsækja okkur í heimabyggð.
Miðasala er í Aðalbúðinni Siglufirði sem er opin kl 13 - 18
KKS
|