Yfir 330 manns mættu á KKS Þorrablótið í fyrravetur sem fékk frábærar viðtökur. Í lokaræðu sinni spurði ræðumaður hvort fólk vildi endurtaka þetta að ári og var það samþykkt með kraftmiklu lófataki.
KKS Þorrablótið verður 14. febrúar 2009 í Íþróttahúsinu Siglufirði. Við viljum sérstaklega benda starfsmannafélögum fyrirtækja og stofnana á að taka þátt í KKS Þorrablótinu sem án efa er veglegasta þorrablótið á svæðinu, og þannig efla það enn frekar. Fleiri saman meira gaman. Miðasala í Aðalbúðinni, Aðalgötu 26 Siglufirði , og hér á vefsíðunni. Miðaverð aðeins kr. 5.500.- Ef þú vilt kaupa miða hér á vefnum skaltu smella hér
|