Yfir 300 manns mættu á KKS Þorrablótið að þessu sinni og er það mál manna að vel hafi tekist til. Í lokaræðu sinni spurði Óskar Elefsen viðstadda hvort þeir vildu endurtaka þetta að ári og var það samþykkt með kraftmiklu lófataki. Þá spurði Óskar hvort einhver væri á móti og gaf sig enginn fram. Það má því gera ráð fyrir að KKS Þorrablótið verði árlegur viðburður í Siglufirði. Takk fyrir frábærar viðtökur, allir þeir sem mættu á KKS Þorrablótið !
|